Fyrir máli:
Ég sat í stofu kennara míns og horfði niður á blaðið sem hún var að lesa.
Þetta blað innihélt upplýsingar um þá skóla sem ég hafði valið mér. Þeir voru settir í sæti eftir eftir því hversu mikið mig langaði til að fara í hvern og einn. Var röðin eftirfarandi
Gakushuin skóli, sem ég hafði heirt að væri með allt prógramið sitt á japönsku og var í léttari kanntinum. Mjög skemmtilegt félagslíf var líka það sem við nemanir höfðum heyrt mest af.
Tokai Háskóli, sem ég hafði lesið að væri þekktur fyrir magn frumkvöðla sem útskrifuðust frá honum, hafði einnig íslenskudeild. Allt námsefnið væri á japönsku.
Og seinast á listanum var Kansai Gaidai, þar sem allir töluðu ensku og mikið af tímum á ensku. Og þar með líka mikið af evrópskum enskumælandi nemendum
Kennarinn var lengi að fara yfir blaðið og ég gat séð að hún var þungt hugsi, það var eitthvað sem henni líkaði ekki við.
"Þú veist að allt efnið er á japösnku", sagði hún loksins eftir langa bið og bætti við "Þetta er ekki endalaus partý eins og Ólafur segir alltaf"
Ég fattaði þá hvað hún var að hugsa. Ágúst er einn af þessum nemendum sem vill fara út í ódýra partý ferð og mun læra ekki neitt í Gakushuin skólanum.
Ég reyndi að telja henni trú um sannleikan, að ég vildi læra sem messt úti og ég hélt að annað hvort Gakushuin eða Tokai myndu verða best fallnir til þess. Þar sem enskumælandi partý fólk væru örugglega í minni hluta.
Allt í einu þá lifnaði yfir henni
"Tokai?" spurði hún og leit aftur á blaðið eins og hún hafði aldrei séð það áður.
Ég svaraði játandi, hafði lesið mér til um hann áður og leist vel á það sem þeir sögðust bjóða upp á. "Er það svo" sagði hún og glott kom á varir hennar, hún gerði nokkrar glósur á blaðið, þakkaði fyrir viðtalið og bauð mér að fara. Ég hafði það á tilfinninguni meðan ég gekk aftur á bak út úr skrifstofunni með kennarinn ennþá glottandi, eins og köttur sem hafði tak á músarskotti, að ég hafði mögulega skotið sjálfan mig í fótinn og vissi ekki hvar kúlan hafði lent.
Nokkrum mánuðum síðar var ég mættur í Tokai Háskóla.
Skólinn er byrjaður og hann byrjaði hratt
Við höfum verið tjáð (á japösnku) að það verða 3 próf á hverjum degi auk heimavinnu.
Við erum í skólanum frá 9:20 til 14:55 með 50 mínútna matarhlé.
Einnig er auka tími á laugardögum frá 9:20-12:35.
Aðal einkunnar orð eins kennarans er "speedo upu"! eða "meiri hraða" sem ætti að gefa til kynna hverskonar pressu við erum sett undir.
En verandi frá íslandi og vanur pressu frá vinnu og skóla þá var ég fljótur að venjast þessari geðveiki og get núna tekið þessu öllu með ró.
Samt verð ég að viðurkenna að fyrstu daganir voru erfiðir.
Tokai Háskóli, fyrsti dagur:
Við Gestur gengum út af lestarstöðinni Tokaidaigaku-mae-eki. Sem þýðir á íslensku Lestarstöðin fyrir framan Tokai háskóla. Þótt nafnið gefur það til kynna að hún sé fyrir framan skólann þá er hún reyndar1 til 2 kílómetra fyrir aftan hann og er stöðin staðsett fyrir rætur hæðar sem skólinn ,í allri sinni dýrð, situr ofan á. Við Gestur gengum upp þessa hæð með allan farangurinn minn, einhver 40kíló, og það sem blasti við okkur þegar við komum inn á kampusinn var fólk að stunda æfingar allstaðar. Skokkandi eins og hermenn í röðum og fólk að hvetja þau áfram eins og Sargent-ar í bandarískum bíómyndum. Ég var kominn með efasemdir um það hvort ég hafði valið rétt..
Á skrifstofunni var okkur sagt hvað við þyrftum að borga fyrir leigu og uppihald. Tryggingar og annað því tengt. Var það þó nokkur peningur sem bættist ofan á þar. Svo var okkur komið inn í leigubíl og keyprir aftur fram hjá lestarstöðinni á heimavistinna. Þar var aðstaðan sýnd af Eigandanum. Er húsbragurinn í takt við 1970-80 með hátækni viðvörunar kerfi.
Eftir kvöldmat kvöddumst við Gestur loksins og ég gekk heim í nýja heimilið mitt.
Fyrsta kvöldið var áhugavert. Ég heyrði hljóð frá fólki en sá engann. Öll ljós voru slökktu og afgreiðslan tóm. Herbergið var mjög tómlegt og nöturlegt. Til að lýsa þessu betur þá var þetta eins og samsuða af bíómyndinn "The Shining" og tölvuleiknum "Silent Hill4, the apartment" Ég ákvað að taka allt upp úr töskunum og fara snemma að sofa í þessu hrillingsmynda umhverfi.
Hvernig aðstæður eru í dag.
Eftir að hafa verið hér í u.þ.b. 2 vikur þá hef ég eignast fleiri vini en hægt er að telja á fingrum sér, er kenndur við Mat Damon og Leonardo DeCaprio af bæði karlmönnum og kvennmönnum.
Var boðið í box klúbbinn og æfi þar núna 3 daga í viku. Er fasta gestur í líkamsræktar stöð skólans og geng vel að klára heimavinnuna mína og læra fyrir öll próf.
Herbergið er orðið aðeins meira lifanlegt og það er búið að lifna yfir heimavistinni. Við erum 4 skandinavar sem búum hérna og spilum spil á kvöldin.
Núna erum við að fara út að borða þar sem það er enginn matur á sunnudögum á heimavistinni.
Það er allt í lagi því maturinn er ennþá ódýrari en heima á íslandi.
Ég vil núna í þessu bréfi koma með nokkrar vangaveltur og reiðis pistla varðandi kreppuna.
Hví, í staðinn fyrir að leita að mönnum sem geta komið með góð ráð um hvernig á að haga sér í versnandi efnahag og finna leiða til að laga ástandið, eru allir fjölmiðlar heims að öskra heimsendir? Við fáum aðeins að heyra frá þeim og "sérfræðingunum" sem þau tala við að allt sé að fara til fjandans en enginn er að spyrja " og hvernig getum við lagað það?"
Það eina sem kemur frá fjölmiðlum er hræðslu áróður og tortryggni sem , ef ég skil banka krísuna rétt, er ein af ástæðunum fyrir því að efnahagurinn er núna eins og hann er.
Ef eitt vandamálið er að fjárfestar treysta ekki bönkunum afhverju er þá ekki farið yfir bækur bankana og fundið út hversu vel þeir standa af endurskoðendum (kannski borgaðir af ríkinu).
Ef bankinn er gegnsær og vel settur þá hlítur hann að draga að sér fjárfesta. Er það ekki?
Ef fólk fer og tekur peningana sína út úr bankanum og þar með tæmir hann, þá mun hann falla. En ef fólk geymir peningana sína í bankanum, sýnir traust á þá stofnun sem hefur reynt að ávaxta féð í lengri tíma. Þá mun hann standa og verða eftirsóttur af fjárfestum. Kannski væri hægt að stofna reikning til langtímasparnaðar þar sem eigandi lánsfésins og bankanir gera samning um að þetta fé fari í að styrkja bankann á alþjóðavettvangi og verða peninganir bundnir í einhver ár. Það er mikill peningur í fólki og þó að þetta séu aðeins fimmhundruð eða þúsundkallar, þá safnast saman þegar saman kemur.
Getur Ríkistjórn Íslands og Bankanir ekki byrjað að reyna að stemma stigum við þessari eitruðu umfjöllun sem er í útlöndum varðandi íslenska banka? Eða jafnvel íslendingar sjálfir. Það þarf bara 1 íslending til að eyðileggja gott orð 10 íslendinga varðandi markaðinn. Þess vegna þurfa íslendingar að fara að passa tungu sína aðeins og vera ekki að segja hvað sem er við hvern sem er varðandi markaðinn. Nema kannski "þetta er að reddast!"
Mestu máli skiptir að muna það að peningar eru eins verðmætir og þú heldur að þeir séu og ekki missa mikinn svefn vegna múgæsings sagna um kreppur og heimsendingar. Við þurfum ekki peningar til að anda.
Bestu kveðjur
Agust Th.
Áhuga sinni um betri framtíð
Sunday, October 5, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)