Jæja, ég hef verið látin vita að ég hef ekki skrifað póst í lengri tíma.
Það verður hér með lagað.
Til þeirra sem ég hef ekki ennþá heyrt í ; Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Hér gengu jólin yfir og ég þarf bara að segja að ég er frekar sáttur. Ég hef einungis slappað af og sofið í fríinu hef bætt á mig smá jólaspiki en það hverfur vonandi þegar ég fer að hreyfa mig aftur. Hjálapr bara að halda í mér lífinu þar sem hitinn í herberginu mínu er um 0 gráður og fer lækkandi. Jólagjafinar voru ekki af verri kantinum. Hlý peysa frá mömmu og emil sem kemur sér vel núna í vetrar kuldanum. Einnig fékk ég ipod fylgihlut frá Tótu, alberti og barböru sem minnkar vandræðin með snúruna fyrir heyrnartólin, hún hefur næstum drepið mig þrisvar sinnum þessi snúra en þetta apparatus mun laga þann vanda til frambúðar. einnig fékk ég peysu frá þóru og liz sem bjargaði mér alveg á jóladag.
Ég hef komist að því að ein manneskja getur framleitt heljarinar ósköp af skít þótt hún gerir ekki neytt. Ég þreif herbergið mitt og baðherbergið. Stór munur að sjá þar og er ég frekar sáttur við ferska loftið sem fylgir ryklausu og sýklaeyddu herbergi.
En hvað hefur gerst þennan mánuð sem ég hef ekki bloggað?
Nú er spurning hvar á að byrja, ætli ég byrja ekki á byrjuninni sem var seinasti skóla dagur..
Þennan skóla dag mátti sá námsleiða yfir öllum nemunum einn dagur til stefnu og þá frí. Spennan var að drepa þetta þrótt litla lið og var ég ekkert skárri. Allir gerðu samt sitt besta alveg út í lok dags og hafði kennarinn orð af því " Vá hvað þið voruð öll dugleg í dag, ég skildi jafnvel japönskuna hans Ágústar!" ég veit ekki hvort kennarinn var að skamma mig eða hvetja mig, allavega ég mun taka mig á í fríinu.
Eftir seinasta skóladag var ferðinni heitið til Tokyo að hitta vin minn Morimoto. Ég hafði sýnt honum norðurljós fyrir nokkrum árum þegar hann var skiptinemi á íslandi og hann vildi endilega hitta mig. Morimoto hafði breyst mikið síðan ég hitti hann seinast. Orðinn harður business maður í japan, eða eins og þeir kalla það "sarariman" og við spjölluðum um hvað við hefðum gert undanfarin ár og minningar okkar frá íslandi (ég hafði sigur úr býtum þar sem ég hef búið þar í 21 ár en hann aðeins eitt). bauð hann mér upp á japanskt tempura og var spjallinu haldið áfram yfir bjór, fékk ég að heyra hvernig það er að vera fyrirtækja maður og var lýsingin eitthvað fyrir hryllingssagnabók. Eftir það hittum við samstarfs fólk hans og töluðum saman um ísland og daglegt líf, endapunkturinn var samt bestur þar sem ég og vinkona hans fengum að gista heima hjá morimoto. Var horft á spólu (kunf fu panda á japönsku) og borðað snakk fram á rauða nótt. Eitt með íbúðina hans Morimoto.
morimoto á heima í íbúð sem kallast á japönsku mansion (mansion þýðir flott íbúð á japönsku). Þessi íbúð hefði komist fyrir í íbúð móður minnar tvisvar sinnum. Var eitt aðalherbergi sem var einnig svefnherbergi. Gangur sem var einnig eldhús, og svo baðherbergi sem var einnig klósett(japanir hafa oftast klósett og bað í sitt hvoru herberginu). Við íslendingar höfum það frekar gott þegar kemur að rími...
Eftir kvöldstundina með morimoto tóku jólin við. Skandinavanir og Þjóðverjanir í skiptináminu héldu jól saman og var það virkilega gaman. Var kjúklingur á borðum og voru spiluð spil við kertaljós, gerist ekki meira skandinavískt en þetta.
Svo hef ég bara leigið í leti og spilað á spil við fólkið á heimavistinni. Einnig hef ég gluggað í bækur, ætla mér að klára síðustu daga sókratesar fyrir lok frís og einnig fræði rit um sjón soviet ríkjana á kjarnorku kapphlaupið við bandaríkjamenn, mjög áhugaverð lestning. námið er líka stór partur af loka dögum frísins.
annað skemmtilegt til að segja frá. Það gengur víst brjálæðingur laus í smábænum sem ég bý í. Hann gengur um með stóran hníf og brjálað augnaráð. Fólk hefur séð hann en hringir ekki í lögreglluna því það vill ekki stofna til vandræða. ein stúlka hefur verið stunginn af þessum manni.
Einnig önnur frétt, ég er að stofna hönnunarfélag sem mun selja vörur sínar á japans markaði. Er þetta verkefni komið vel á veg og er fyrsti félagsfundur í janúar ef allt leyfir. Hef eins og er 5 hönnuði um borð og nokkra sem eru óákveðnir en vantar enn fólk til að koma félaginu á fullan snúning. Mun láta vita hvernig þetta apparat gengur í næstu færslum.
Jæja, vona að jólin séu ánægjuleg og fólk hafi það gott yfir hátíðinnar.
Knús og kossar eða eitthvað þannig.
Kveðja
Ágúst Þorvaldsson
Monday, December 29, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)