Sunday, September 21, 2008

Framhaldið

Jæja góðir hálsar, það er kominn tími á framhald á ferðasögunni.

Fukuoka

Ég og Gestur gátum ekki gert mikið í Fukuoka þar sem við vorum veikir. Náði ég að smita hann í Manga kaffihúsinu þar sem hann þurfti að sitja hliðinn á mér allan tímann.
Við vorum samt báðir orðnir fínir á leiðinni til baka.
Aftur á móti þá settist ég niður að drykkju með japana, kóreubúa og kínverja. Þeir voru allir vinir og vildu endilega heyra um ísland og hvernig mér fannst japan.

Leiðin til Tokyo.

A leiðinni til baka komum við við í Hiroshima og fórum á staðinn þar sem sprengjunni var varpað í síðari heimstyrjöldinni. Þar var hægt að sjá leyfar byggingar sem varð fyrir henni. Maður fær loksins skilning á hversu öflugt svona vopn er í rauninni og ég vona að það komi aldrei til þess að það verði notað aftur. Við skoðuðum einnig safn sem sem er um sprenginguna. Ef þið eigið einvhern tímann leið í gegnum japan þá er þetta einn af þeim stöðum sem maður verður að skoða.
Ég hitti einnig pennavinkonu mína í hiroshima. Móðir hennar vildi endilega hitta mig áður en hún sýndi mér borgina. Hélt örugglega að ég væri perri áður en hún hitti mig, einhver gaur af netinu að spjalla við dóttur hennar. En eftir á þá fær vinkona mín ekkert annað að heyra en að ég sé virkilega sætur og myndarlegur, besta efni í eiginmann. Við erum samt ekkert í giftingarhugleiðingum, enda ekki í sambandi.
Gestur, ég og vinkona mín fórum öll saman að eyju sem lyggur við Hiroshima og hefur Fljótandi Búddahlið. Þegar við komum var fjara og við gátum gengið að hliðinu og skoðað það í návígi. Á eyjunni voru einnig einhverskonar dádýr sem bjuggu meðal fólksins og vildu láta klappa sér. Enn og aftur þá eru til myndir en ég er enn að reyna að koma þeim af vélinni inn á netið. Eftir daginn þá sagði ég bless við vinkonu mína og við Gestur héldum áfram ferð okkar.

Okayama

Við komum aftur til Okayama um kvöldið og fengum að gista aftur hjá Magga vini okkar. Við vorum hjá honum í tvo daga og hann hjálpaði okkur mikið. Ég fékk japönsku kennslu frá tveggja ára dóttur hans sem fannst japansku kunnátta mín hörmuleg. Maggi fór með okkur í nærliggjandi bæ sem var forðabú keisarans áður fyrr en er núna ferðamanna staður. Gestur man nafnið en ég hef enga hugmynd um hvernig á að bera það fram. Allavega, í þessum bæ er endurgerð af Tivolíinu í Danmörku, fullt af söfnum og kattarbúðin.
Það hefur verið einkabrandari okkar Gests í ferðinni að maður getur fundið allt í japan. Og einn af þeim hlutum sem cið héldum að við gætum fundið væri Tónlist gerp með mjálmi. Allavega við fundum þá búð. Endalausar kattarstyttur, kattarleikföng, nammi og hlutir til daglegra nota allt með kattarþema. Og svo kattartónlistin. Aðra eins geðveiki hef ég ekki upplifað. Þarna voru helstu verk tónlistar sögunnar endurgerð með kattarmjálmi. Ég vorkendi afgreiðslu dömuni (sem þurfti að hafa kattareyru uppi) að þurfa að hlusta á þetta væl, daginn in og daginn út. Við Gestur gátum samt ekki annað en brosað yfir þessu öllu.

Eftir að hafa hvílst í Okayma í 2 daga þá kvöddum við Magga og fjölskyldun hans og tókum rútuna til Osaka. Þar ætlaði ég að hitta aðra pennavinkonu mína en hún fékk feimniskast rétt áður og gat ekki komið. Þannig að ég og Gestur höfðum heilan dag í einni stærstu borg japans og ekkert fyrir stafni. Þannig að við fórum í leikjasal. Við reyndum fyrir okkur í skotleikjum og verðlaunaleikjum. Þessum leikjum sem enginn vinnur í. Og skemmtum okkur konunglega. Gestur náði samt að læra á einn kassann og tæmdi hann alveg. Ég er með mynd af kassanum til sönnunar og hún fer á netirð við fyrsta tækifæri. Við tókum svo miðnætur rútuna til Tokyo.

Tokyo.
Loksins mættum við til Tokyo. Langþreittir og lúnir ferðalangar.
Við fórum fyrst af öllu á hótelið okkar, sem var gamalt túbuhótel, og komum farangri okkar fyrir.
Túpuhótelið var mjög sérstakt. herbergi manns er u.þ.b. 1 meter á hæð, 1 metri á breidd og 2 metrar á lengd. Sameiginleg klósett aðstaða og á efstu hæð var einnig japanskt bað. Versta við baðið er að það eru risastórir gluggar allt í kring, og egnin gluggatjöld. Var maður dáldið berskjaldadaður en útsýnið var æðislegt.

Eftir 2 nætur á Túbuhótelinu fengum við okkur herbergi á nálægu Hosteli. Gat ég þá loksins komist í allan farangurinn minn. Það er ótrúlega góð tilfinning eftir 3 vikna bakpokaferðalag. Að fara í langa heita sturtu og geta farið í hrein föt frá íslandi. Maður finnur fyrir míkingarefninu og finnur lyktina af heiman.
við skemmtum okkur alveg konunglega í Tokyo. Hittum gömlu kennarana mína, sem eru ekki það gamlar í rauninni. Fórum á stærsta sverðasafn í Asíu. Mér er sama hvað Garðar segir um japönsk sverð ég vil ekkert vera hogginn eða stunginn með þeim í eða án brynju.
Við fórum út á lífið með öðrum ferðalöngum og sungum Karaoke fram á rauða nótt. Allt í allt þá var rosalega gaman í Tokyo og ég hef heilt ár til að skoða hana.

Eftir mánaðar ferðarlag skyldust leiðir og ég fór á heimavistina og Gestur fór aftur heim til Íslands.

Í næsta pósti.

Tokai háskóli og fyrstu daganir á heimavistinni

Þangað til
haldið áfram að vera Genki!
Ágúst Þ.

Tuesday, September 9, 2008

Japan Part 1

Japan

Buinn ad vera herna i 3 vikur u.th.b. og er samt ad sja eitthvad nytt a hverjum degi.
Eg aetla ad reyna ad deila med ykkur lesendur godir thvi sem eg og Gestur hofum sed.

Eg aetla ad byrja a flugferdinni
Tho ad airfrance kunna ekkert i vef sidugerd og geta gert mann brjaladann thegar madur vill panta mida, tha er thjonustan fra Frakklandi til Japans otruleg um bord. Hvert saeti er med sinn eigin sjonvarpskja og fylgir styripinni med. Er haegt ad horfa a 6 myndir med 3 mismunandi tali og fara i tolvuleiki. Einnig er haegt ad sja hvar madur er a jardkringlunni og fa allar upplysingar um hita haed og hrada flugvelarinnar.
Og svo kom sjokkid. Fritt gos og afengi, godur flugvela matur og frir is, nudlur eda samlokur i midju flugi. Einnig var morgun matur. Eg er ekki svona godu vanur i flugferdum.

Eftir u.th.b. 14 tima flug og heilan dag i London thar adur lentum vid a Narita flugvelli. Fyrsta sem vid gerdum var ad fa okkur eitthvad ad drekka. Hittum vid tha mest creepy solumann sem eg hef hitt a aevi minni. Hvislandi ram rodd, slanalegur og starandi tom augu. En vid vorum ekki bunir ad ferdast yfir halfan hnottinn (yfir nordur serbiu og kina til Tokyo) til ad horfa a creepy solumenn thannig ad vid heldum afram leid okkar til Tokyo.

Tokyo, 1 dagur

Osofnir og ny komnir forum vid beint til Shinjuku thar sem hotelherbergi beid okkar.
Hotelherbergi I midju skemmtanahverfi tokyo kostadi 11700yen eda 6000 yen a mann.
Vid forum starx ut ad lita i kringum okkur. That sem maetti okkur var flod af folki, sjonvarpskjair sem vorpudu fram flogaveikisgefnadi ljosum og aerandi hljodmengun.
Vid komum half vankadir til baka a hotelherbergid.
Naesta dag var storu toskunni minni med ars byrdum af bokum komid fyrir a toskuhoteli og tha fyrst byrjadi ferdalagid thvi naesti afanga stadur var Kyoto.

Kyoto.

Frabaer borg til ad heimsaekja. Mundi ekki vilja bua thar en hun er virkilega skemmtileg og roleg mida vid Tokyo og Osaka. Vid Tokum hradlestina, Shinkansen, til Kyoto sem tok adeins 1 klukkutima og 40 minutur. Sem er talsvert minna en 6 timar sem that tekur med venjulegri lest.
Vid skradum okkur in a odyrt hotel sem er med klassisk japonsk herbergi. sem thidir litil og vid sofum a golfinu plus eitt sjonvarp og loftraesting. Sameiginlega sturta og klosett. Vid mattum ekki vera a hotelinu milli 10 og 15 medan tekid var til. Eg fagnadi thessum afanga i ferdini med thvi ad fa kvef.
I kyoto voru skodud hof. Sem voru otrulega flott. og Lestar stodin sem var Risastor. Myndir koma seinna.
Thar var einnig farid a Bonfestival. Og fengum vid tha ad sja hvernig folk i hverfinu sem vid buum i skemmti ser saman. Var thessi bonfestival a sama tima og jardarfor. Veit ekki hvort that tengdist eitthvad.
That ahugaverdasta vid thessa skemmtun, fyrir utan fjoldan sem thar var saman komin, var hvad that voru fair litluputtar mida vid hofdatolu.
Thetta var eins og ad ganga inn i sopranos thatt sem hafdi verid gerdur i japan. Ther voru ut um allt. Einn var vist ny kominn ur adgerd og hafdi ispoka thar sem puttinn fekk ad fjuka. adrid satu i stuttermabolum og sast glitta i listaverkin undan ermunum. Their litu bara ut eins og fynustu menn. Vid Gestur vildum samt ekkert vera ad angra tha thannig ad vid gengum fljotan hring i kringum svaedid og forum ad fa okkur eitthvad ad borda i hinum enda baejarins. Thvi midur tha eru engar myndir.

Naesta stop, Osaka

Osaka er stor borg. Vid vissum ekki mikid um hana thannig ad vid skodudum litid. Vid forum upp a Haestu bygginguna Thar. 200 og eitthvad metrar og horfdum yfir borgina. Hun er flot med fullt af blokkum, hef myndir til ad sanna that. O g svo var hangid nidur i bae.
Einn skemmtilegur punktur. Grapiski tolvuleija skolinn HAL er i Osaka. Hann leit daldid skemmtilega ut. Hafdi tvaer domur i afgreidslunni sem sogdu godan daginn vid mann og velmenni sem atti ad segja hae en var bara bilad og keyrdi i hringi.

Og svo Okayama

Litil borg thar sem vinur okkar byr i. Vid hvildum luin ferdabein thar i tvo daga og nadum attum adur en vid tokum langa lestar ferd til Fukuoka. Su lestar ferd tok u.th.b. 12 tima og thergar vid vorum loksins maettir thurftum vid ad eyda nottinni a Manga cafe thar sem hostelid gat ekki tekid vid okkur a midnaetti.

Til ad utskyra Manga cafe tharf adeins ad lita a farsima notkun japana. Farsimar i japan geta tengst netinu, lesid og sent tolvupost og gert adra hluti sem nokia og erikson simanir a islandi dreyma um ad geta. 3G simanir eru lika adeins a eftri theim japonsku. Thar sem allir eru med netid a simanum sinum tha eru netkaffihus otharfi, eda that litur thannig ut. Svarid vid thessari throun er Manga Cafe. Stadur thar sem ungir krakkar sem vilja ekki fara heim geta hangid dogum saman fyrir u.th.b. 3000 kall a nott. Sturta, gos og allar myndasogur sem madur vill lesa. Tolva med netadgang og sjonvarp med dvd spilara og ps2. Haegt er ad fa myndir landar. Adgangur ad Online leikjum, pool, pilukasti og ping pong. Allt innifalid i 3000 yenunum. Thad var einnig thvottavel og thurkari sem thurfti ad borga hundrad yen i. Thvottaefnid kom sjalfkrafa. Vid Gestur eyddum dagodum tima ad spila bordtennis milli 1 og 3 um morguninn.
Einu vandraedin eru ad madur tharf ad sofa i ledursofa med loftraestinguna a fullu thannig ad that var skit kallt tharna inni. Eg var enntha ad kljast vid leifar af kvefinu thannig ad eg hostadi eins og brjalaedingur allt kvoldid.

I naesta post Fukuoka framhald, Hiroshima og ferdin baka til Tokyo.
Thangad til stay genki.
Kvedja
Agust