Thursday, July 31, 2008

Fyrirmáli. Undirbúningurinn

Hún er byrjuð.

Ég er ekki búinn að stýga upp í flugvélina. Land er ekki úr sjón, en samt er ferð mín til Japans byrjuð.
Ég hef yfirgefið vetrarbúðir mínar í Vesturbænum og komið mér aftur fyrir á ættaróðalinu í Kópavogi. Eins og við mátti búast voru viðtökunar höfðinglegar og er enginn takmörk á gestrisni Baugakórs. Næstu 18. daga mun ég þurfa að fara yfir eigur mínar og skjöl. Finna út hvað af því glyngri, bókum og pappírum sem ég hef safnað yfir æfina muni gagnast mér á ferðum mínum. Einnig mun ég þurfa að ná í pappírana sem gera dvöl mína í Japan löglega.

Áður en ég legg upp í Víking þarf ég víst að framkvæma nokkra hluti. Fyrst af öllu er að finna Töskur og burðarpoka til að geyma farangurinn minn. Einnig þarf ég Ný föt fyrir fyrstu daga mína á ferðalaginu þar sem allar flíkur mínar eru úr sér gengnar. Ferðatrygging hefur líka fengið að sitja á hakanum en ég þarf hana bara í einn mánuð.

Þó að það er einungis um 2 vikur þangað til ég fer þá finnst eins og allt sé eftir. Svo margt sem getur farið á mis. Þegar dimmar hugsanir vaxa í huga mér þá rifja ég alltaf upp heilla orð föður míns "Þetta reddast". Þessi orð sögð með kæruleisis tón og jafnvel hálfbrosi eyðir öllum vanda á augabragði. Ekkert verk verður yfirstýganlegt og allar lausnir koma rjúkandi í átt að manni.

7 9 13

En tíminn er naumur og eins og stundarglas þá ef fylgst er með honum þegar kornin eru að klárast þá er eins og hann fari hraðar, sem hann gerir. Þess vegna hef ég engin stundarglös í gangi í kringum mig núna. Tíminn þarf helst að standa í stað..

Eigið góðar stundir
Þangað til næsta bréf.

Ágút Th.

No comments: