Tuesday, November 25, 2008

Um bata og skandinava

Jæja gott fólk. Nú er komið að uppfærslu.

Ég biðst velvirðingar á hversu lengi hún var að koma, ég hef verið þunglindur undanfarið. En núna er skapið að koma aftur. :)

Skólinn er ennþá frábær, ég hrasaði aðeins í náminu en er aftur kominn á skrið, er um að kenna endalausu frétta lestri og sorgarferli. Var að missa afa minn fyrir nokkrum vikum. Sé mjög mikið eftir honum en hann lifir í minninguni.

já þetta hefur verið erfiður mánuður en ég er kominn með nóg af sjálfsvorkuninni.
Veit ekki beint hvar ég á að byrja. Margt hefur nefnilega skeð. Yenið er núna orðið miklu sterkara en krónan, ég tók þátt í útlanda hátíð og keypti nýja tölvu.

að yenið hafi orðið sterkara þýðir einfaldlega að draumar mínir um að vera moldríkur nemi í japan hafa breyst í að vera fátækur stúdent í japan. Sem er ekki slæmt. Ég hefði örugglega bara gert einhverjar fáránlegar vitleysur. Þakka samt fyrir að hafa farið í þetta mánaðar ferðalag með Gest um landið. Núna er það ekki svo auðvelt.

Þótt heimskreppa sé skolinn á, efnahagurinn hrunin og yenið aldrei sterkara þá uppfyllti ég loforð mitt við sjálfan mig. Ég keypti nýja tölvu í japan. Hún var reyndar hræ ódýr miðað við aðrar tölvur og ódýrari en sú gamla var á sínum tíma á tilboði. Hún kostaði samtals 135þúsund krónur og mun endast næstu 3-4 árin. Hin verður einnig til taks og hef ég þá tvær vélar til að vinna með. Ég hef líka sett mér það markmið að þegar ég hef tíma að skoða c++ og eða java. Þá get ég gert það á gömlu án þess að vera hræddur um að eyðileggja líflínu mína við alheiminn.

Frétta lestur minn hefur breyst í fíkn. Ég vaki allar nætur les fréttir frá 7 fréttastofum. Breta, bandaríkjana 4 frá íslandi og ein frá japan sem er á ensku. Ég veit eiginlega alveg hvað er að gerast í þjóðfélagiu og er frekar sáttur við landan. En eftir þetta bréf hættir þessi árátta. Hún er komin út í rugl og ég hef ekki efni á slíku. Af hverju að lesa fréttir af Íslandi alltaf þegar maður er í japan.

Alþjóðahátíðinn var skemmtileg pása frá náminu. Það má samt ekki túlka það þannig að ég var að slappa af. Ég var nefnilega einn með íslenska borðið og það var einn japani sem hjálpaði mér. Þarna þurfti ég að hanga og tala við fólk um ísland. Um efnahaginn og afhverju það voru draugar á landakortinu sem við höfðum. En þetta var lítið ókeypis landakort sem einhver átti upp í skáp eftir för til íslands. Fólk var samt sammála um að það vildi skreppa í heimsókn Ég er með myndir af borðinu en á eftir að finna leið til að setja þær inn á veraldar vefinn.

einnig fékk ég frí á laugardaginn sem var æðislegt. Loksins fékk ég að sofa aðeins út og endurheimta orku. Það kom sér vel því ég var í miðannar prófum. Í umtöluðum miðannar prófum (sem voru þrjú) er ekki gefinn annar séns. Það eru enginnn upptektar próf. var öll málfræðin, lestur og stafsetning sett á einn dag, það voru yfir 3 tímar. Málnotkun á einn dag, 5 mínútur og hlustun á einn dag, 20 til 30 mínútur með fólk talandi á ljóshraða hljómar svona "MIBH". Ég bara gerði mitt besta eftir erfiðar vikur og mun ekki kveina mér ef mér gekk illa, ég bara læri meira í vetrar fríinu.

Ég er einnig búinn að eignast mmjög góðan vin hérna. Hann er norðmaður og heitir Breede Haave, fínn gaur í alla staði. Verst er að karmað mitt kemur út á sléttu með að setja mig í húsnæði með Dana sem er öllum hvöl og pína. Ég þekki þá nokkra og eru þeir allir frábærir daninir sem ég hef hitt, en þessi gerir mig alveg snar... ég samt bít í vörina og er kurteis. Koma fram við aðra eins og þú villt að komið sé fram við þig og allt það. Hann fer samt eftir tvo mánuði þannig að ég lifi þetta af held ég.

Jæja núna er klukkan orðin margt og ég ætla að reyna að sofan loks á skikkanlegum tíma. Reyni að svara fleiri fyrirspurnum í næsta pósti og hann mun koma fyrr en áður hefur gerst.

Bestu kveðjur frá japan

Ágúst Þorvaldsson

1 comment:

Hrönn said...

Leitt að heyra með afa þinn, ég samhryggist þér.
Haltu áfram að massa skólann og mundu að skemmta þér líka!! :D ganbatte, Hrönn